Grindavík í átta liða úrslit Lengjubikarsins
Grindvíkingar tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Lengju-bikarkeppninnar, en liðið endaði í öðru sæti síns riðils í keppninni og komst í átta liða úrslitin á markamun, en þrjú lið voru jöfn í riðlinum með 11 stig.
Til stóð að Grindvíkingar myndu mæta Valsmönnum í átta liða úrslitunum, en þar sem Valur dró lið sitt úr keppni munu Grindvíkingar leika gegn Þór Akureyri.
Eftirtalin lið munu mætast í átta liða úrslitunum:
KR – ÍA
KA – Selfoss
Þór – Grindavík
Breiðablik – FH
Leikirnir eru allir settir á sunnudaginn 9. apríl.