sudurnes.net
Golf- og Púttklúbbur Suðurnesja fá inniaðstöðu í Íþróttaakademíunni - Local Sudurnes
Lovísa Hilmarsdóttir formaður íþrótta- og tómstundaráðs Reykjanesbæjar, Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Hafsteinn Guðnason formaður Púttklúbbs Suðurnesja og Jóhann Páll Kristbjörnsson formaður Golfklúbbs Suðurnesja undirrituðu í gær samning um innanhússaðstöðu fyrir kylfinga í Íþróttaakademíunni, en þar verða klúbbarnir verða þar í góðu nágrannasambandi við Fimleikadeild Keflavíkur. Jóhann Páll Kristbjörnsson sagði Golfklúbb Suðurnesja aldrei hafa haft inniaðstöðu og það verið hamlandi fyrir klúbbinn. “Þetta er gleðidagur fyrir kylfinga á Suðurnesjum. Golfarar hafa þurft að fara á höfuðborgarsvæðið til þess að geta æft yfir veturinn en nú er það úr sögunni. Golfið er á uppleið á Suðurnesjum, fjöldi virkra klúbbfélaga er í sögulegu hámarki, alls 540 og fjölgaði um 12% frá því í fyrra.“ Sagði Jóhann Páll. Púttklúbbur Suðurnesja hafði aðstöðu í HF, en það var rifið fyrr á þessu ári. Hafsteinn Guðnason formaður klúbbsins þakkaði fyrir aðstöðuna og sagðist vona til að samskiptin í húsinu yrði sem best. Klúbbmeðlimum hafi allsstaðar liðið vel, bæði í Röstinni, þar sem fyrsta aðstaða klúbbsins var og í HF og hann átti von á því að eins yrði í Akademíunni. Meira frá SuðurnesjumGrindavík aftengd frá SvartsengiUngir og efnilegir íþróttamenn fengu hvatningarverðlaunJ’Nathan Bullock snýr aftur í GrindavíkKinga Korpak að gera góða hluti í golfiSkilja ákvörðun Síldarvinnslunnar um [...]