Nýjast á Local Suðurnes

Góðir gestir í heimsókn í Körfuboltaskóla UMFN – Myndir!

Athyglin var í topp lagi þrátt fyrir að það hafi verið mikið fjör í íþróttahúsi Akurskóla, þegar stærstu stjörnurnar í íslenska körfuboltanum litu í heimsókn á lokadegi körfuboltaskóla UMFN á fimmtudag. Þau Haukur Helgi Pálsson og Carmen Tyson-Thomas, leikmenn Njarðvíkur og Elvar Már Friðriksson leikmaður Barry háskóla í Bandaríkjunum litu í heimsókn og fóru yfir nokkur atriði sem skipta máli ætli menn sér að ná langt í íþróttinni.

Njarðvíkingar hafa staðið fyrir körfuboltanámskeiðum sem þessum yfir sumartímann undanfarin ár og hafa nær undantekningarlaust færri komist að en vilja, skráning er hafin á síðasta námskeið sumarsins sem hefst þann 11. júlí næstkomandi og er hægt að hafa samband við Kkd. Njarðvíkur varðandi skráningu á námskeiðið.

korfusk5

korfusk2

korfusk3

korfusk1

korfusk6

korfusk7

korfusk8

korfusk9

korfusk10

korfusk11