Gísli og Hafsteinn leggja flauturnar á hilluna
Gísli H. Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson munu ekki dæma á Íslandsmótinu í handknattleik sem hefst í septembermánuði. Þeir hafa ákveðið að hætta dómgæslu eftir 34 ár, en á þeim tíma hafa þeir dæmt um 1.700 kappleiki í öllum aldursflokkum í handknattleik.
Þeir Gísli og Hafsteinn hafa staðið í eldlínunni í úrslitaleikjum jafnt í úrslitum Íslandsmótsins og í bikarkeppninni. Auk þess hefur Gísli verið afar virkur í félagskap dómara. Mbl.is greindi frá.