Nýjast á Local Suðurnes

Gísli og Hafsteinn fá ekki að dæma í úrslitum bikarsins – “Erum sár­ir og svekkt­ir”

Gísli H. Jó­hanns­son og Haf­steinn Ingi­bergs­son, eitt reyndasta dómarapar landsins munu ekki dæm­a neinn af undanúrslita- eða úrslitaleikj­um Coca Cola-bik­ars­ins í hand­knatt­leik karla og kvenna, sem fram fara í Laug­ar­dals­höll um helgina.

Gísli segist í samtali við Morgunblaðið í dag ekki vita hvers vegna þeir félagar fái ekki að taka þátt í úrslitahelginni að þessu sinni, enda svari formaður dómaranefndar ekki símtölum.

„Sú staðreynd að við fengj­um ekki einn af leikj­un­um sex hef­ur legið fyr­ir í nokkra daga. Síðan hef ég reynt að ná í Guðjón [for­mann dóm­ara­nefnd­ar] en hann hef­ur ekki svarað í síma. Við telj­um okk­ur ekki eiga skilið fram­komu af þessu tagi eft­ir hafa verið dug­leg­ir að dæma í rúm 30 ár. Við erum sár­ir og svekkt­ir.“ Sagði Gísli

„Ef Guðjón hefði hringt í okk­ur og skýrt fyr­ir okk­ur af hverju við vær­um ekki inni í mynd­inni hefðum við kannski sætt okk­ur við þessa staðreynd,“ sagði Gísli við Morgunblaðið.