sudurnes.net
Garðar "IceRedneck" sér um leikmannakynningu í Ljónagryfju - Local Sudurnes
Njarðvíkingar virðast ætla að fara frekar óhefðbundnar leiðið í leikmannakynningum fyrir heimaleiki karlaliðsins í Dominos-deildinni í körfuknattleik. Þeir brugðu á það ráð að spila lag Klaufabárðanna úr samnefndum sjónvarpsþáttum þegar lið Keflvíkinga var kynnt til leiks í fyrsta leik tímabilsins og í þem næsta, gegn Stjörnunni, mun internetstórstjarnan Garðar Viðarson sjá um að kynna liðin til leiks. Trukkabílstjórinn Garðar Viðarsson er sérstaklega vinsæll á Snappinu, enda er hann afar duglegur við að Snappa hinum og þessum skemmtilegu myndum úr hinu daglega lífi trukkabílstjórans. Garðar notast við notendanafnið ICEREDNECK og hefur tæplega 2000 fylgjendur á Snappinu – Við mælum með að fólk bæti kalli á Snaplistann, því hann á það til að deila ótrúlegustu hlutum með fylgjendum sínum – Þá mælum við með því að fólk skelli sér í Ljónagryfjuna á föstudag og hlusti á flotta leikmannakynningu a la IceRedneck. Þessi mynd af IceRedneck fór á flug á veraldarvefnum í haust Meira frá SuðurnesjumFerðu snemma í ræktina? – Þá er þessi kaffi og próteindrykkur rétta boostið!Gamalt og gott: Reykjavíkurstórveldi gerði grín að hrepparíg á SuðurnesjumGrindavíkurbær einfaldar samningagerð við íþróttahreyfingunaGrindvíkingar fá nýjan markvörðTryggvi Guðmundsson genginn til liðs við NjarðvíkAníta og Dröfn í landsliðshópnum sem tekur þátt í milliriðli EMTryggði Arnór Ingvi sér farseðilinn á [...]