sudurnes.net
Frábær blakhelgi að baki - Tveir titlar til Keflavíkur - Local Sudurnes
Um helgina fóru fram síðustu umferðirnar í neðri deildum karla og kvenna í blaki. Konurnar sem spila í 5. deild fóru á Ísafjörð á meðan karlarnir sem spilaí 3. deild fóru til Húsavíkur. Þar sem 12 lið eru í 5. deild kvenna þá var liðunum skipt upp í tvo úrslitariðla eftir stöðu liðanna í riðlinum fram að þessu móti, efstu sex fóru í A úrslit og kepptu um deildarmeistaratitilinn. Keflavík fór inn í þann riðil sem fjórða besta liðið, en þar sem öll lið byrjuðu núna á 0 stigum var möguleikinn alltaf fyrir hendi. Tap eftir oddahrinu í fyrsta leik gegn Aftureldingu var ekki að hjálpa liðinu, en stigið sem liðið fékk fyrir að vinna hrinu 2 átti eftir að reynast mikilvægt. Ekkert annað var í stöðunni eftir þessi úrslit en að treysta á að Hrunamenn tækju stig af Afturledingu og Keflavík myndi vinna sína leiki 2-0 og taka þannig öll 12 sigin sem í boði væru. Allt gekk upp og var því síðasti leikur mótsins, leikur Hrunamanna og Keflavík úirslitaleikur. Keflavík var á þessum tímapunkti búnar að tryggja sér bronsið, hins vegar með 2-1 sigri gætu þær tekið silfur og með 2-0 sigri var gullið þeirra. Þess má geta [...]