Nýjast á Local Suðurnes

Fjórir framlengja við Víði

Fjórir leikmenn Víðis í Garði hafa framlengt samninga sína við félagið Þetta eru þeir Arnór Smári Friðriksson, Dejan Stamenkovic, Milan Tasic, Aleksandar Stojkovic.

Arnór Smári átti frábært tímabil í sumar en hann er 21 ára gamall bakvörður og var valinn efnilegasti leikmaður Víðis árið 2017. Arnór spilaði 22 leiki með liðinu í sumar en hann kom í til félagsins í fyrra.

Dejan Stamenkovic er 27 ára kantmaður . Hann var valinn besti leikmaður tímabilsins 2017 af leikmönnum og þjálfurum. Hann hefur spilað 44 leiki fyrir félagið og skorað í þeim 5 mörk. Hann er að hefja sitt fjórða tímabil með liðinu.

Milan Tasic framherji/kantmaður sem er 29 ára gamall og er að hefja sitt fimmta tímabil á Íslandi og fjórða með Víði. Milan lenti í erfiðum meiðslum i upphafi sumars þegar hann sleit liðþófa en kom sterkur til baka. Milan hefur spilað 37 leiki fyrir Víðir og skorað í þeim 18 mörk.

Aleksandar Stojkovic miðjumaður/framherji er 30 ára og hefur spilað 51 leiki fyrir Víðir og skorað í þeim 26 mörk. Aca var valinn besti leikmaður ársins 2016. Aca er sömuleiðs eins og Milan og Dejan að hefja sitt fjórða tímabil með Víði.