Fjórða tap Grindvíkinga í röð
Grindvíkingar hafa ekki átt sjö dagana sæla undanfarin misseri í Pepsí-deild karla í knattspyrnu, liðið tapaði sínum fjórða deildarleik í röð, nú gegn Víkingi Ólafsvík, í 14. umferð deildarinnar í kvöld.
grindvíkingar óðu í færum í leiknum, en Víkingar skoruðu þó fyrsta markið úr aukaspyrnu strax á annari mínútu. Grindvíkingar sóttu án afláts eftir markið, en öflugur markvörður Víkinga sá við þeim.
Andri Rúnar Bjarnason jafnaði leikinn á 61. mínútu með fallegri afgreiðslu eftir aukaspyrnu René Joensen, sem var að leika sinn fyrsta leik fyrir Grindvíkinga. Víkigar skoruðu sigurmarkið um fimm mínútum síðar, en Grindvíkingar fengu fjölda færa til að jafna leikinn, en tókst ekki.
Eftir tapið í kvöld sitja Grindvíkingar í 5. sæti deildarinnar með 21 stig.