Nýjast á Local Suðurnes

Fjórar sundkonur frá ÍRB kepptu á NM í Bergen

Fjórar sundkonur úr ÍRB, þær Eydís Ósk Kolbeinsdóttir, Karen Mist Arngeirsdóttir, Stefanía Sigurþórsdóttir og Sunneva Dögg Friðriksdóttir,  kepptu á Norðurlandamótinu í sundi dagana 11. – 13. desember. Mótið var haldið í Bergen í Noregi í glænýju og flottu mannvirki. Mótið var gríðarsterkt og erfitt var að komast í úrslit.

Bestum árangri ÍRB-fólks náði Sunneva Dögg Friðriksdóttir þegar hún endaði í 4. sæti í 200m skriðsundi þar sem hún bætti sinn besta tíma um tæplega sekúndu frá ÍM 25.