sudurnes.net
Fjórar stúlkur frá Keflavík tóku þátt í EM U18 í körfuknattleik - Local Sudurnes
Landslið Íslands U18 í kvennaflokki lauk á dögunum keppni í B-deild Evrópumótsins í körfuknattleik, sem fram fór í Sarajevo, en Keflvíkingar áttu fjóra fulltrúa í liðinu, sem stóð sig vel. Thelma Dís Ágústsdóttir, Emelía Ósk Gunnarsdóttir, Katla Rún Garðarsdóttir og Þóranna Kika Hodge-Carr voru fulltrúar Keflvíkinga á mótinu. Þær léku um bronsverðlaun og sæti í A-deildinni gegn Bosníu en þurftu að lúta í lægra haldi gegn sterku liði. Thelma Dís Ágústsdóttir var atkvæðamest hjá íslenska liðinu með 16 stig, í leiknum. Meira frá SuðurnesjumUnglingalandsliðin í körfu: Framtíðin er björt á SuðurnesjumSex Suðurnesjastúlkur í landsliðshópnum í körfuknattleikKeflavík Meistarar meistarannaAníta og Dröfn í landsliðshópnum sem tekur þátt í milliriðli EMSunneva Dögg og Eydís Ósk í sérflokki á Actavismóti SHValur Orri og Thelma Dís best í körfunni hjá KeflavíkMár stóð sig vel á EM50 – Setti Íslandsmet í flugsundiEmelía Ósk frábær þegar U18 landsliðið tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum EMJón Axel og Kristinn frábærir þegar Ísland tryggði sér sæti í 8 liða úrslitum EMÞorleifur leggur skó á hillu