Fjölnir lagði Keflavík í bikarnum
Neðsta lið Dominos-deildarinnar, Fjölnir tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum Geysisbikars karla í með óvæntum 106-100 sigri á Keflavík sem vermir annað sæti deildarinnar.
Fjölnismenn voru yfir í hálfleik 50-43 og náðu mest 15 stiga forskoti en staðan fyrir fjórða og síðasta leikhlutann var 75-73, Fjölni í vil. Fjölnir hélt út þrátt fyrir áhlaup Keflvíkinga og tryggðu sér sæti í undanúrslitum.