Nýjast á Local Suðurnes

Fimm fengu heiðursmerki Njarðvíkur fyrir störf í þágu knattspyrnudeildar

Fimm einstaklingar sem komið hafa að starfsemi knattspyrnudeildar Njarðvíkur voru í heiðraðir á aðalfundi UMFN sem fram fór í gærkvöldi.

Þeir Guðmundur Sæmundsson og Jón Einarsson voru sæmdir gullmerki félagsins, fyrir störf sín í þágu félagsins. Helgi Arnarson fékk afhent silfurmerki og þeir Haraldur Helgason og Þórir Rafn Hauksson voru sæmdir bronsmerki.