Nýjast á Local Suðurnes

Eyjamenn ráku síðasta naglann í kistu Keflvíkinga

Keflvíkingar eru svo gott sem fallnir úr Pepsí-deildinni í knattspyrnu eftir 0-3 tap gegn ÍBV í dag, Keflvíkingar eru 11 stigum frá öruggu sæti og einungis 12 stig eftir í pottinum.

Eyjamenn voru mun sterkari aðilinn í leiknum í dag og skoruðu tvö mörk á sjö mínútna kafla eftir um hálftíma leik og þannig var staðan í hálfleik. Þriðja markið kom svo á 73. mínútu og öruggur sigur ÍBV í höfn.

Keflvíkingar sem sitja á botni deildarinnar með sjö stig eftir 18 leiki eiga eftir að leika gegn Val, ÍA, Stjörnunni og Leikni en liðið þarf sigur í öllum þessum leikjum auk þess sem þeir þurfa að treysta á að önnur lið í fallbaráttunni tapi sínum.