Nýjast á Local Suðurnes

Eric Wise og Guðmundur Bragason hætta hjá Grindavík

Guðmundur Bragason, sem gegnt hefur stöðu aðstoðarþjálfara meistaraflokks karla í körfubolta það sem af er vetri, hefur beðist lausnar frá þjálfunarstörfum sökum mikilla anna í vinnu.  Yfirlýsingu stjórnar Kkd. Grindavíkur má lesa í heild sinni hér að neðan:

„Sökum mikilla anna í vinnu hefur Guðmundur Bragason tilkynnt Stjórn Kkd UMFG að hann geti ekki haldið áfram sem aðstoðarþjálfari hjá meistaraflokki karla. Þó þetta sé vissulega áfall fyrir okkur þá sýnum við Gumma að sjálfsögðu fullann skilning og höldum áfram, við erum jú vissulega með part af honum liðinu !! Gummi mun þó öskra liðið áfram úr stúkunni þegar hann getur og aðstoða lítið eitt við það sem upp getur komið. Við viljum þakka Gumma fyrir það sem liðið er af tímabilinu og óskum honum að sjálfsögðu alls hins besta.“

Þá mun Eric Wise yfirgefa herbúðir Grindvíkinga eftir leikinn gegn Haukum í Dominos-deildinni í kvöld en hann hefur samkvæmt frétt á Grindavik.net fengið tilboð frá S-Kóresku liði og hefur vefmiðillinn eftir stjórn Kkd. Grindavíkur að lítið sé hægt að gera til að stöðva þau félagsskipti þar sem um sé að ræða gríðarlegt tækifæri fyrir hann.