sudurnes.net
Eric kemur og Tevin fer - Local Sudurnes
Tevin Falzon er á förum frá Njarðvík en eftir veru hans á reynslu hjá félaginu hefur sú ákvörðun verið tekin að semja ekki frekar við leikmanninn. Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur þakkar Falzon fyrir samstarfið en í hans stað hefur verið samið við Eric Katenda. Katenda lék með Njarðvík á síðustu leiktíð þar sem hann var með 11,6 stig og 8,4 fráköst að meðaltali í leik. Katenda kemur til landsins í dag og verður kominn með leikheimild á föstudag þegar Njarðvík mætir toppliði Stjörnunnar í Garðabæ. Mynd: Kkd Njarðvíkur. Meira frá SuðurnesjumFrakki á leið í LjónagryfjunaGrindvíkingar fá öflugan kana – Lék með Pheonix Suns í sumardeildinniDaði Lár Jónsson aftur til KeflavíkurElvar Már á topp 5 lista yfir bestu leikmenn í FloridaGrindvíkingar tóku bikarmeistarana í kennslustund í körfuboltaGrindvíkingar semja við framherja frá UCI háskólanumFriðrik Ingi tekur við KeflavíkKeflvíkingar semja við tveggja metra reynsluboltaKanalaus nágrannaslagur í Ljónagryfjunni í kvöldEric Wise og Guðmundur Bragason hætta hjá Grindavík