sudurnes.net
EM U20 í körfuknattleik - Suðurnesjamennirnir standa sig vel - Local Sudurnes
Íslenska landsliðið í körfuknattleik, skipað leikmönnum undir tuttugu ára aldri, heldur til í Grikklandi um þessar mundir, þar sem það tekur þátt í B-deild Evrópukeppninnar. Liðið hefur leikið þrjá leiki á mótinu, einn hefur tapast, gegn Hvít-Rússum, 70-73 en tveir hafa unnist, á laugardag vann liðið frækinn 71-65 sigur á Rússum og í gær lagði liðið Eistland með 75 stigum gegn 72. Grindvíkingurinn Jón Axel Guðmundsson fór á kostum í liði Íslands gegn Rússlandi, en körfuknattleiksmaðurinn ungi skoraði 32 stig, tók 11 fráköst og var með 5 stolna bolta en næstur honum kom Kári Jónsson með 14 stig skoruð og 3 fráköst. í Sigrinum á Eistlandi skorað Jón Axel 7 stig, en hann hefur skorað 18,3 stig að meðaltali í mótinu. Njarðvíkingurinn Kristinn Pálsson er einnig í liðinu og hefur sömuleiðis staðið sig vel, hann hefur gert 6,3 stig að meðaltali í leik og tekið 7 fráköst. Liðið leikur lokaleik sinn í riðlakeppninni á miðvikudag klukkan 15.45 gegn Póllandi, hægt er að fylgjast með í beinni á Youtube-síðu finnska körfuknattleikssambandsins. Meira frá SuðurnesjumJón Axel og Kristinn frábærir þegar Ísland tryggði sér sæti í 8 liða úrslitum EMJón Axel valinn í úrvalslið Evrópumóts U20Hrund og Jón Axel íþróttafólk GrindavíkurMikilvægir leikir hjá Suðurnesjaliðunum í boltanum um helginaNjarðvíkursigur í Ásgarði [...]