sudurnes.net
Elvar Már yfir 1000 stigin fyrir Barry háskóla - Local Sudurnes
Njarðvíkingurinn Elvar Már Friðriksson náði tvöfaldri tvennu þegar hann skoraði 20 stig og gaf 10 stoðsendingar með liði Barry háskóla í leik gegn Rollins í bandarísku háskóladeildinni í körfuknattleik í gær. Með stigunum 20 komst Elvar Már í hóp þeirra 9 nemenda sem hafa skorað yfir 1000 stig fyrir liðið frá upphafi. Tölfræði Elvars hjá Barry er góð, en á tímabilinu er körfuknattleiksmaðurinn ungi með 18,4 stig að meðaltali í leik, 7,7 stoðsendingar og 54% skotnýtingu, þar af 50% þriggja stiga nýtingu eftir sjö leiki á tímabilinu, en hann hefur hitt úr 21 af 42 þriggja stiga skotum sínum. Barry sigraði leikinn gegn Rollins með 103 stigum gegn 91. Meira frá SuðurnesjumElvar Már í eldlínunni í kvöld – Sjáðu leikinn í beinni!Njarðvíkingar eiga mikilvægan leik gegn Sindra á sunnudagFrábært tímabil á enda hjá Elvari Má – Valinn í lið ársinsEnn einn stórleikurinn hjá Elvari MáElvar Már vinsæll í bandaríska boltanum: “Hver er þetta nr. 10? – Hann er ótrúlegur”Elvar Már frábær í sigri Barry – Sjáðu myndbandið!Suðurnesjaliðin með sigra – Tvíframlengdur spennutryllir á SauðárkrókiElvar Már einn besti leikmaður Barry frá upphafiElvar Már og félagar úr leik eftir tap gegn Lincoln MemorialElvar Már á meðal 100 bestu í bandaríska háskólaboltanum – Tilnefndur [...]