sudurnes.net
Elvar Már tók málin í sínar hendur - Barry í átta liða úrslit í annað sinn í sögunni - Local Sudurnes
Lið Barry í bandaríska háskólaboltanum tryggði sér sæti í átta liða úrslitum NCAA keppninnar í nótt, með sigri á sterku liði Eckerd háskóla, 79-72. Þetta er í annað sinn í sögu skólans sem liðið nær að tryggja sér sæti í átta liða úrslitunum. Njarðvíkingurinn Elvar Már Friðriksson átti enn einn stórleikinn með liði Barry, en hann gerði sér lítið fyrir og skoraði 29 stig í leiknum. Barry var níu stigum undir þegar þrettán mínútur lifðu leiks en þá tók Elvar már til sinna ráða og skoraði 14 stig í röð, þar af 12 með skotum fyrir utan þriggja stiga línuna. “Á tímabili hélt ég að þetta yrði minn síðasti leikur með liðinu, en það kom aldrei til greina að falla úr leik svona,” sagði Elvar á blaðamannafundi eftir leikinn. Meira frá SuðurnesjumElvar Már með enn einn stórleikinn – “Friðriksson var bara Friðriksson”Elvar Már með sigurkörfuna á síðustu sekúndu eftir tvær framlengingarFlottur Njarðvíkursigur í Vesturbænum – Grindavík í þriðja sætið eftir öruggan sigurElvar Már og félagar í 32-liða úrslit NCAA – Hefja leik þann 11. marsElvar Már lykilmaður í sögulegum sigri Barry háskólansElvar Már og félagar úr leik eftir tap gegn Lincoln MemorialSkotfélagsfólk með Íslandsmet – Theodór sigraði á LandsmótiNjarðvík semur [...]