sudurnes.net
Elvar Már fer vel af stað með Barry - Local Sudurnes
Háskólaboltinn í Bandaríkjunum hefst á næstu dögum og eru liðin á fullu í æfingaleikjum þessi misserin. Lið Barry háskóla sem Njarðvíkingurinn Elvar Már Friðriksson leikur með tapaði fyrsta leik sínum á undirbúningstímabilinu gegn liði Miami 73-62, í leik þar sem lið Miami réði ferðinni allan leikinn. Elvar Már átti þó fínan dag, skoraði 17 stig, gaf 5 stoðsendingar og tók 5 fráköst, en hann var með 10,8 stig að meðaltali í leik á síðustu leikstíð, auk þess að setja met í fjölda stoðsendinga, en hann var með 267 slíkar á síðasta ári. Deildarkeppnin hefst hjá Barry-liðinu þann 12. nóvember næstkomandi, en þá taka Elvar Már og félagar á móti liði Johnson & Wales. Meira frá SuðurnesjumFín byrjun hjá Suðurnesjamönnunum í háskólaboltanumElvar Már aftur valinn leikmaður vikunnar í SSC-deildinniMikil bæting hjá Elvari Má – Kláruðu árið með risasigriElvar Már talinn munu skara fram úr á komandi tímabili í háskólaboltanumElvar Már vinsæll í bandaríska boltanum: “Hver er þetta nr. 10? – Hann er ótrúlegur”Elvar Már tók málin í sínar hendur – Barry í átta liða úrslit í annað sinn í sögunniFækkað í æfingahóp landsliðsins í körfu – Dagur Kár ekki meðRagnheiður Sara þriðja í Miami – Myndband!Tap hjá Keflavík en sigur hjá NjarðvíkNjarðvík í [...]