sudurnes.net
El Sjeiks sigruðu á vel heppnuðu fyrirtækjamóti í blaki - Myndir! - Local Sudurnes
Blakdeild Keflavíkur stóð fyrir fyrirtækjamóti í blaki um helgina í íþróttahúsinu við Sunnubraut, 10 lið voru skráð til leiks í þetta skiptið og keppt var á þremur völlum. Þetta er annað árið í röð sem blakdeildin stendur fyrir móti af þessu tagi og var þátttakan í ár mun betri en aðstandendur mótsins þorðu að vona. “Við áttum ekki von á svona mikilli þátttöku og við erum mjög þakklát fyrir þátttökuna og ég held að allir hafi skemmt sér mjög vel.” Sagði Svandís Þorsteinsdóttir, formaður Blakdeildar Keflavíkur í samtali við Suðurnes.net. Verðlaun voru veitt fyrir þrjú efstu sætin, í 3. sæti lentu Penslar og verkfæri, Ráðhús Reykjanesbæjar lenti í öðru sæti og sigurvegarar mótsins urðu El sjeiks. El sjeiks fögnuðu sigri á mótinu Reykjanesbær og El sjeiks léku til úrslita á mótinu Meira frá SuðurnesjumSigrar hjá Suðurnesjaliðum 3. deildarÓlafur Ólafsson semur við Grindvíkinga á nýMarkalaust hjá Keflavík og KA – “Lögðum okkur fram og sköpuðum færi”Stórt tap hjá Keflavík í fyrsta leik Sverris ÞórsFjör á fjölmennasta sundmóti landsins – Myndir!Njarðvík deildarmeistari – Stórt tap hjá VíðiSigrar hjá Keflavík og Njarðvík – Grindavík tapaðiNjarðvík í Inkasso-deildina – Víðir á veika vonGóður árangur Suðurnesjamanna í akstursíþróttum um helgina – Myndir!Daníel Leó valinn í U21 [...]