sudurnes.net
Einar Árni verður áfram í Þorlákshöfn - "Vona að uppeldisfélaginu gangi vel" - Local Sudurnes
Einar Árni Jóhannsson og lærisveinar hans í Þór frá Þorlákshöfn eru komnir í frí frá körfubolta næstu misserin eftir að hafa tapað gegn Haukum í æsispennandi leik í Icelandic Glacial höllinni í Þorlákshöfn í gær. Þórsarar voru sterkari aðilinn nær allan leikinn, sem fór í framlengingu og lauk með sigri Hauka, 96-100. Þó að Einar Árni hafi verið svekktur með úrslitin er hann stoltur af sínu liði. “þetta svekkj­andi því við vor­um tvisvar með augna­blik í venju­leg­um leiktíma þar sem við vor­um bún­ir að setja lyk­il­inn í og átt­um bara eft­ir að skella í lás en vor­um klauf­ar.” Sagði Einar Árni. “Stoltur af mínu liði og hlakka til framhaldsins. Margar frábærar minningar og við tökum þær með okkur inn í sumarið, sem er mikilvægur tími. Mínir menn hafa öðlast mikla reynslu í vetur, spilað tvo bikarúrslitaleiki og farið í hörku seríu gegn frábæru Haukaliði. Veturinn var gott skref í fjárfestingu framtíðar Þórs!” Segir Einar Árni Þrátt fyrir að vera á sínu fyrsta ári sem þjálfari Þórsara er Einar Árni reyndur þjálfari og hefur meðal annars stjórnað Njarðvíkingum sjö sinnum í úrslitakeppni. Árangur Einars með Þór verður að teljast góður, en auk þess að komast í 8-liða úrslitin lék liðið til úrslita í Powerade-bikarnum, þar sem það tapaði gegn KR-ingum. [...]