sudurnes.net
Davíð Snær jafnaði landsleikjamet Eiðs Smára - Local Sudurnes
Davíð Snær Jóhannsson, leikmaður Keflavíkur í knattspyrnu, jafnaði leikjamet hjá U-17 ára liði Íslands þegar hann spilaði gegn Tadsikistan á móti í Hvíta Rússlandi í vikunni. Davíð er á því jafnmarga leiki að baki með U-17 ára liðinu og Eiður Smári Guðjohnsen og Valur Fannar Gíslason sem léku með U-17 ára liðinu á árunum 1992-1994. Davíð Snær gæti mögulega slegið met þeirra Eiðs Smára og Vals Fannars þar sem næsta verkefni hjá U-17 er í mars þegar liðið leikur í milliriðli í Þýskalandi gegn heimamönnum Þýskalands, Slóveníu og Hvíta Rússlandi um sæti í lokakeppni EM sem fer fram á Írlandi í maí. Meira frá SuðurnesjumGlímudeild UMFN lögð niðurArnór Ingvi: “Var ekkert búinn að hugsa út í sæti í EM-hópnum”Grannaslagur í LjónagryfjuMár Gunnarsson mun keppa á EM fatlaðra í sundiSuðurnesjafólk á sæti í öllum yngri landsliðum KKÍRagnheiður Sara keppir um sæti á Heimsleikunum um helgina – Fylgstu með í beinni!Tryggði Arnór Ingvi sér farseðilinn á EM? – Sjáðu markið gegn Grikkjum!Ísland í 6. sæti á EM U-18 í körfuknattleikÚlfur Blandon tekur við Þrótti VogumEnn bætir Már Íslandsmet – Keppir til úrslita í 100 metra flugsundi