Nýjast á Local Suðurnes

Davíð Hildiberg er sundmaður Íslands árið 2017

Sundsamband Íslands hefur valið Davíð Hildiberg Aðalsteinsson sundmann ársins 2017, en Davíð sem keppir fyrir hönd ÍRB hefur lengi verið með betri baksundsmönnum landsins. Hrafnhildur Lúthersdóttir, Sundfélagi Hafnarfjarðar var valin sundkona ársins.

Davíð Hildiberg Aðalsteinsson er 27 ára sundmaður í Íþróttabandalagi Reykjanesbæjar. Hann stundaði nám í Arizona State háskólanum í Bandaríkjunum og útskrifaðist sem arkitekt í fyrrasumar en meistararitgerð hans fjallaði um fjölnota sundaðstöður. Hann hefur síðan þá æft í Reykjanesbæ Hann hefur lengi verið með betri baksundsmönnum landsins.

Davíð Hildiberg stóð sig best allra íslenskra karla í sundi á árinu 2017. Fyrst ber að telja gullið á Norðurlandameistaramótinu hér í Reykjavík í byrjun desember en hann sigraði 100m baksund. Þá komst hann í úrslit í 50m baksundi á sama móti og endaði fjórði. Davíð vann svo til tveggja bronsverðlauna í einstaklingssundum á Smáþjóðaleikunum í San Marino í sumar. Hann var í landssveit Íslands í boðsundi sem setti tvö landsmet á mótinu og unnu til tveggja silfurverðlauna.

Davíð þykir kurteis og rólegur í öllum samskiptum og hvetjandi og styðjandi við fólkið í kringum sig. Hann er frábær fyrirmynd yngra sundfólks og alltaf verið metnaðarfullur í því sem hann tekur sér fyrir hendur. Hann er jákvæður og hefur stundað íþróttina af miklum þrótt síðastliðin ár. Hann er því vel að þessari viðurkenningu kominn, segir í umsögn um dagvíð á vef Sundsambands Íslands.