sudurnes.net
Davíð Eldur og Ólafur taka við ritstjórn Karfan.is - Local Sudurnes
Davíð Eldur Baldursson og Ólafur Þór Jónsson tóku um helgina við sem ritstjórar vinsælasta körfuboltavefmiðils landsins, Karfan.is. Báðir hafa starfað um hríð við fréttaskrif á vefsíðunni. Karfan.is hóf göngu sína á veraldarvefnum fyrir tæplega ellefu árum, en stofnendur síðunnar voru Suðurnesjamennirnir Jón Björn Ólafsson, Davíð Ingi Jóhannsson og Ingvi Steinn Jóhannsson. Jón Björn hefur ritstýrt vefnum frá upphafi. Í tilkynningu á heimasíðu Karfan.is kemur fram að á næstunni muni nýir ritstjórar koma sínum áherslum fyrir á síðunni og að það sé einlæg von allra sem að síðunni standa að þeir félagar fái góðar mótttökur sem víðast í hreyfingunni. Mynd: Karfan.is/Bára Meira frá SuðurnesjumGrindvíkingar reyna að heilla Hauk Helga – “Trítaður í druslur!”Lýsi hættir samstarfi við Grindavík í fótboltanumGolf- og Púttklúbbur Suðurnesja fá inniaðstöðu í ÍþróttaakademíunniEl Sjeiks sigruðu á vel heppnuðu fyrirtækjamóti í blaki – Myndir!Fjör á fjölmennasta sundmóti landsins – Myndir!Búist við að Stefan Bonneau fái nokkrar mínútur í kvöld160 krakkar kepptu á Speedomóti ÍRBNjarðvík í Inkasso-deildina – Víðir á veika vonNjarðvíkingar eigna sér landsliðsmann – Reppaði grænt í stúkunni á nágrannaslagStanda við kröfu um verkfræðilega úttekt – Eftirlit með verksmiðjunni fordæmalaust