Nýjast á Local Suðurnes

Daði Lár Jónsson aftur til Keflavíkur

Daði Lár Jónsson hefur ákveðið að leika með Keflavík á næsta tímabili. Þar lék hann seinni hluta síðasta tímabils en hafði samið aftur við uppeldisfélag sitt Stjörnuna í júní. Skjótt skipast veður í lofti og Daði hefur snúið aftur til Keflavíkur.

Það er Karfan.is sem greinir frá þessu og þar kemur fram að Daði hafi leikið um fimm mínútur í leik hjá Keflavík á síðasta tímabili og skilaði 1,8 stigi að meðaltali. Keflavík hefur þó misst Val Valsson til bandaríkjanna og því opnast möguleikar fyrir Daða.

Sterkur varnarleikur hefur verið hans aðalsmerki og mun reynast Keflavík mikill styrkur. Fyrir áramót lék hann 7 leiki fyrir Stjörnuna og skorað í þeim 3.3 stig, tekið 3 fráköst og sent 1 stoðsendingu að meðaltali í leik.