Brynjar Þór hættur með Þrótt Vogum – Náði besta árangri í sögu liðsins í sumar
Brynjar Þór Gestsson þjálfari Þróttar Vogum hefur sagt upp störfum sem þjálfar liðsins, en samhliða meistaraflokksþjálfun var hann yfirþjálfari barna og unglingastarfs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórn Knattspyrnudeildar Þróttar.
“Það er samdóma álit stjórnar UMFÞ og Knattspyrnudeildar UMFÞ að Brynjar hafi sinnt starfi sínu vel og samstarf við hann innan félags verið til mikillar fyrirmyndar. Þróttur Vogum kann honum miklar þakkir fyrir sitt framlag til knattspyrnunnar í Vogum og óskar honum og hans fjölskyldu alls hins besta í framtíðinni.” Segir í tilkynningunni.
Uppgangur félagsins hefur verið hraður undanfarin ár, en Þróttur Vogum tryggði sér sæti í 2. deild í fyrsta sinn í sögunni í sumar og ætlar félagið sér stærri hluti á komandi árum.
Stjórn knattspyrnudeildar ætlar að leggja áherslu á að halda þeim leikmönnum sem fyrir eru hjá félaginu og hefur framkvæmdastjóra Þróttar verið falið að leita eftirmanns Brynjars og mun sú vinna hefjast á næstu dögum.