sudurnes.net
Bónusgreiðslur í Grindavík - „þykir jafn vænt um stúlkurnar og drengina" - Local Sudurnes
Kvennalið Grindavíkur náði frábærum árangri í 1. deildinni í knattspyrnu í sumar, en liðið tryggði sér sæti í Pepsí-deildinni að ári, þrátt fyrir stórt tap gegn Haukum í úrslitaleik deildarinnar. Liðið lék 14 leiki í riðlakeppninni, sigraði tólf, tapaði einum og gerði eitt jafntefli. Í leikjunum fjórtán skoraði liðið 46 mörk og fékk aðeins á sig fjögur. Karlaliðið náði svipuðum árangri, lenti í öðru sæti í Inkasso-deildinni og tryggði sér þar með sæti í Pepsí-deildinni að ári. Fyrir árangurinn skiptist um 6 milljóna króna bónusgreiðslur á milli leikmanna liðsins, sem gerir rétt um 300.000 krónur á hvern leikmann. Leikmenn kvennaliðsins fá ekki bónus þrátt fyrir sama árangur. Í samtali við Vísi.is segir Jónas Þórhallsson tekjumöguleikana vera minni kvennamegin og það sé aðal skýringin á þessu máli, auk þess sem ákvæði um bónusgreiðslur var sett í samninga karlaliðsins. „Árið 2012, eftir að við féllum, settum við sérstakan bónus inn í samninga leikmanna og nú erum við að efna hann,“ sagði Jónas í samtali við Vísi í dag. „Það þarf að hafa tekjustofna á bak við svona samninga. Þetta eru snýst um markaðsaðstæður og verðmat.“ Jónasi þykir þó jafn vænt um strákana og stelpurnar og vonast til að þessi munur jafnist út [...]