Nýjast á Local Suðurnes

Blue Lagoon Open 2015 kvennamót í golfi fer fram í ágúst

Aðeins 88 kylfingar komast að í mótinu

Blue Lagoon Open kvennamótið verður haldið á Húsatóftavelli í Grindavík þann 14. ágúst. Um er að ræða eitt glæsilegasta kvennamót ársins. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í punktakeppni og efsta sætið í höggleik án forgjafar. Einnig verða veitt nándarverðlaun á öllum fimm par-3 brautum vallarins. Verðlaun verða fyrir lengsta teighögg á einni braut og að vera næst holu í 2 höggum á einni par 4 braut. Dregið verður úr skorkortum í mótslok. Allir þátttakendur í mótinu fá glæsilega teiggjöf.

Ræst verður út af öllum teigum kl. 10:00 og því komast aðeins 88 kylfingar að í mótinu. Morgunverður kl. 09:00 fyrir mót, léttar veitingar úti á velli að ógleymdu huggulega púrtvíns og osta tjaldinu og svo veitingar í boði LAVA að móti loknu