Nýjast á Local Suðurnes

Björn Steinar í þjálfarateymi Grindavíkur

Guðmundur Bragason sagði starfi sínu sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla lausu á dögunum sökum anna í vinnu. Grindvíkingar hafa fundið eftirmann Guðmundar og hefur sá þegar hafið störf en það er annar reynslubolti úr körfunni, Björn Steinar Brynjólfsson. Stjórn körfuknattleiksdeildar UMFG sendi frá sér fréttatilkynningu um málið í gær sem lesa má í heild sinni hér fyrir neðan:

Kæra stuðningsfólk.

Eins og þið hafið kannski tekið eftir er komið nýtt, þekkt andlit á bekkinn hjá karlaliðinu en það er okkar eini sanni Björn Steinar. Eftir að Gummi Braga þurfti að gefa þetta frá sér var það í höndum Jóhanns að velja mann sér til aðstoðar. Jóhann leitaði til Björns Steinars sem þáði boðið og er eins og áður segir tekinn til starfa. Það vita það allir að Björn Steinar hefur spilað lengi með okkur auk þess að hafa þjálfað yngri flokka hjá félaginu og því er frábært að fá hann á fullu gasi inni klúbbinn aftur. Hann þekkir vel til okkar og strákanna í liðinu og væntum við mikils af samstarfi þeirra félaga. Verkið fyrir framan þá er stórt því metnaðurinn er mikill og enginn afsláttur gefinn þar. Við bjóðum Björn Steinar innilega velkominn starfa.