Bjarni tekinn við Grindavík
Bjarni Magnússon mun þjálfa kvennalið Grindavíkur það sem eftir lifir tímabils, en hann skrifaði undir samning þess efnis í gær. Gengi liðsins hefur verið undir væntingum það sem af er tímabils, en liðið hefur aðeins unnið tvo af fyrstu sjö leikjum sínum.
Bjarni hefur áður þjálfað í kvennaboltnum, en hann stýrði kvennaliði Hauka í þrjú ár við góðan orðstír. Næsti leikur Grindavíkur er á heimavelli gegn Njarðvík í bikarkeppninni á sunnudaginn kl. 16.