sudurnes.net
Baráttusigur hjá Grindvíkingum - Local Sudurnes
Grindvíkingar lögðu Víkinga að velli með tveimur mörkum gegn einu í Pepsídeildinni í knattspyrnu. Leikið var á Víkingsvelli við fínar aðstæður. Það voru Víkingar sem réðu ferðinni lengst af leiks og skoruðu fyrsta markið á 25. mínútu, og þannig var staðan í leikhléi og geta Grindvíkingar þakkað markverði sínum, Kristij­an Jajalo að munurinn varð ekki meiri í hálfleik, en hann varði nokkrum sinnum vel. Víkingar byrjuðu síðari hálfleikinn einnig betur, en það voru Grindvíkingar sem jöfnuðu, nokuð gegn gangi leiksins á 76. mínútu með marki Alexanders Veigars. Andri Rún­ar Bjarna­son skoraði svo sigurmarkið í uppbótartíma. Dýrmæt þrjú stig fyrir Grindvíkinga sem leika á ný í Pepsí-deildinni eftir langt hlé. Meira frá SuðurnesjumAndri Rúnar afgreiddi AkurnesingaMikilvægur sigur Keflvíkinga á ÞórGrindavík í toppbaráttu – Lögðu KR í Vesturbænum í kvöldReynir Sandgerði á góðri siglingu – Unnu sinn þriðja leik í röðGrindavík jafnaði í uppbótartíma – Enn í öðru sæti deildarinnarKeflavík heldur toppsætinu – Grindavík tapaði gegn nýliðunumÖruggt hjá Njarðvík í fyrsta leikKeflavík fór létt með Leikni – Grindavík tapaði í markaleik á AkureyriGrindavík fór létt með AugnablikAldursforsetar endursemja við Njarðvík