sudurnes.net
B-lið Njarðvíkur úr leik í Maltbikarnum - Local Sudurnes
B-lið Njarðvíkur er úr leik í Maltbikarnum í körfuknattleik eftir tap gegn Haukum í 16-liða úrslitum keppninnar í gærkvöldi. Liðið tapaði með 16 stiga mun, 68-84, en sigur úrvalsdeildarliðsins var þó ekki eins öruggur og lokatölurnar gefa til kynna því Njarðvíkingar stóðu lengi vel í Haukum og voru meðal annars yfir í hálfleik, 38-37. Magnús Þór Gunnarsson var atkvæðamestur Njarðvíkinga í leiknum, en hann skoraði 23 stig, Páll Kristinsson kom næstur með 20 stig og Hjörtur Hrafn Einarsson skoraði 11. Meira frá SuðurnesjumTap hjá Keflavík í úrslitum LengjubikarsinsArnór Ingvi og félagar áfram í EvrópudeildinniAllt undir hjá Njarðvík í Dominos-deildinni – “Óskum innilega eftir stuðningi í kvöld”Stórt tap hjá Njarðvíkingum á SauðárkrókiMissa leikmann ársins yfir til NjarðvíkurGrindvíkingar töpuðu gegn ÞróttiKeflvíkingar töpuðu toppslagnum í spennutrylliSigrar hjá Keflavík og Njarðvík – Tap hjá GrindavíkBreyttar dagsetningar í úrslitakeppni 1. deildar kvennaKeflavík enn í fallsæti eftir tap gegn Val