Arnór Ingvi og félagar í bikarúrslitin eftir háspennuleik
Arnór Ingvi Traustason og félagar hans í austurríska liðinu Rapíd Vín eru komnir í bikarúrslit þar í landi. Liðið leikur gegn Red Bull Salzburg í úrslitunum.
Rapid Vín mætti Lask Linz í undanúrslitum í gærkvöldi, í stórskemmtilegum leik, þar sem úrslitin réðust á lokasekúndunum, eftir mikla dramatík þar sem tvö mörk komu í uppbótartíma. Arnór Ingvi spilaði allan leikinn, en hann er á sínu fyrsta heila tímabili hjá Rapíd Vín.
FINALE💚💚
— Arnór Traustason (@NoriTrausta) April 26, 2017