Arnór Ingvi mögulega á leið í Meistaradeildina – Læknisskoðun hjá AEK í dag
Landsliðsmaðurinn Arnór Ingvi Traustason er mögulega á leið til gríska stórliðsins AEK Aþenu, en Fótbolti.net hefur eftir grískum fjölmiðlum að um sé að ræða lánssamning á milli AEK og Rapid Vín. Þá er greint frá því að Suðurnesjamaðurinn ungi sé á leið í læknisskoðun hjá gríska liðinu í dag.
Yfirmaður íþróttamála hjá Rapid Vín, Fredy Bickel, sagðist á dögunum vera meira en til í að halda Arnóri Ingva Traustasyni hjá félaginu og gefa honum kost á nýju upphafi í Vín.
AEK endaði í 4. sæti í grísku deildinni á síðasta tímabili en liðið vann síðan umspil um sæti í Meistaradeildinni.