sudurnes.net
Arnór Ingvi baðst afsökunar á lélegri frammistöðu - Local Sudurnes
Suðurnesjadrengurinn Arnór Ingvi Traustason bað stuðningsmenn Rapid Wien að fyrirgefa liðinu slappa frammistöðu í leik gegn slóvakíska liðinu Trencin í Evrópudeildinni í knattspyrnu. Leikurinn fór fram á heimavelli Vínarliðsins og sigruðu gestirnir með tveimur mörkum gegn engu, það kom þó ekki að sök þar sem Rapid vann fyrri viðureignina 0-4. Arnór Ingvi þótti þó komast ágætlega frá leiknum í gærkvöldi, ef eitthvað er að marka textalýsingar erlendra miðla, en kappinn sá meðal annars um að taka auka- og hornspyrnur liðsins í leiknum. Honum var þó skipt útaf á 83. mínútu. Afsökunarbeiðnin er stutt og hnitmiðuð, eins og sjá má hér að neðan – Þá má einnig sjá mörk gestanna í myndabandinu hér fyrir neðan. Meira frá SuðurnesjumDómaraskortur í Vogum – Ýmis flott fríðindi í boði fyrir dómaraUngt Keflavíkurlið komið í úrslit LengjubikarsinsNeikvæðar raddir í Njarðvík – “Skil þessa óþolinmæði” segir formaðurinnArnór Ingvi átti stóran þátt í endurkomu Rapid Vín á ÍtalíuElías Már valinn í A-landsliðið – Ingvar og Arnór Ingvi einnig í hópnumIngvar varði víti og stjórnaði fagnaðarlátunum í klefanum – Myndband!Suðurnesjamenn á meðal launahæstu fótboltamanna landsins15 ára Keflvíkurmær markahæst á FaxaflóamótinuMæður landsliðsmanna í aðalhlutverki í “gæsahúðaauglýsingu” Dominos – Myndband!Sveindís Jane valin í úrtakshóp A landsliðsins