Arnar Helgi í fantaformi – Hefur bætt sjö Íslandsmet á undanförnum vikum
Arnar Helgi Lárusson setti nýtt Íslandsmet í 400 metra hjólastólakeppni á Evrópumeistaramóti fatlaðra í frjálsum íþróttum sem fram fer á Ítalíu. Arnar kom í mark á 1:03,91 mínútu sem er tíunda persónulega bætingin hans á árinu og nýtt Íslandsmet.
Arnari tókst ekki að tryggja sér þátttökurétt í úrslitum, en hann keppir aftur í dag og þá í 100 metra keppni sem verður jafnframt síðasta keppnin hans á mótinu.
Arnar Helgi er í fantaformi um þessar mundir, en hann hefur sett sjö Íslandsmet á undanförnum vikum auk þess að bæta eigin persónulega árangur tíu sinnum, eins og áður segir.