sudurnes.net
Anita Lind á leið til Kolding með U-17 ára landsliðinu - Local Sudurnes
Anita Lind Daníelsdóttir er á leið á Opna Norðurlandamótið með U-17 ára landsliði kvenna. Mótið fer fram í Kolding í Danmörku 28. júní – 5. júlí. Þessa dagana fer fram Evrópumót U-17 ára liða hér á landi og því fer yngri hópur á Norðurlandamótið og er Anita Lind í 18 leikmanna hópi sem Úlfar Hinriksson landsliðsþjálfari hefur valið til þátttöku í mótinu. Anita Lind er fædd árið 1999 og verður 16 ára í sumar. Hún leikur með RKV í 3. flokki kvenna og á þegar nokkra leiki að baki með meistaraflokki. Anita Lind hefur leikið tvo leiki með U-17 ára landsliðinu en hún var með liðinu á UEFA-móti sem fór fram í Færeyjum í apríl. Meira frá SuðurnesjumKeflavíkurstúlkur tryggðu sér sæti í undanúrslitum LengjubikarsinsÞrjár Suðurnesjastúlkur léku með U19 landsliðinu gegn PóllandiSameinað lið Keflavíkur og Njarðvíkur leikur til úrslita í bikarnumAnita Lind með U-17 ára landsliðinu til SerbíuKeflavíkurstúlkur ætla sér stóra hluti í 1. deildinniStórsigur í lokaleiknum hjá KeflavíkStórt tap hjá Keflavík í fyrsta leik Sverris ÞórsMark í uppbótartíma tryggði Keflavík sigur í grannaslagTuttugu leikmenn af Suðurnesjum í U16 og U18 ára landsliðinStórsigur Keflavíkur gegn Gróttu – Sveindís Jane skoraði 6 mörk