Andri Rúnar afgreiddi Akurnesinga
Andri Rúnar Bjarnason skoraði öll mörk Grindavíkur þegar liðið mætti ÍA á Akranesi í Pepsí-deildinni í knattspyrnu, í kvöld. Grindvíkingar sitja í fjórða sæti deildarinnar með sjö stig eftir sigurinn í kvöld.
Andri Rúnar kom Grindvíkingum yfir snemma leiks, en Akurnesingar náðu að jafna metin fyrir leikhlé, staðan 1-1 í hálfleik, eftir að markvörður Grindvíkinga, Jajalo, varði slaka vítaspyrnu sem Akranes fékk á lokaandartökum fyrri hálfleiks.
Strax í byrjun seinni hálfleiks kom Andri Rúnar gestunum yfir á nýjan leik, með skoti af stuttu færi. Hann innsiglaði svo þrennuna rétt fyrir lok venjulegs leiktíma, eftir stungusendingu Sam Hewson. Akurnesingar náðu að klóra í bakkann í uppbótartíma, en lengra komust þeir ekki og þrjú mikilvæg stig í hús fyrir Grindvíkinga.