Nýjast á Local Suðurnes

Andri og Linda best í Grindavík

Lokahóf knattspyrnudeildar UMFG fór fram með glæsibrag í Gjánni síðastliðinn laugardag. Bæði lið voru nýliðar í efstu deild og náðu að tryggja veru sína þar að ári nokkuð örugglega.

Á vef Grindavíkur kemur fram ða um 200 manns hafi komið saman þetta kvöld til að fagna árangri sumarsins. Að neðan fylgja nokkrar myndir frá kvöldinu ásamt upplýsingum um verðlaunahafa en fleiri myndir má sjá á Facebook-síðu knattspyrnudeildarinnar.

Verðlaunahafar voru eftirfarandi:

Meistaraflokkur karla:
Besti leikmaðurinn: Andri Rúnar Bjarnason
2. sæti Jajalo
3. sæti Sam Hewson
Markahæsti leikmaðurinn: Andri Rúnar Bjarnason
Mikilvægasti leikmaðurinn: Sam Hewson

Meistaraflokkur kvenna:
Besti leikmaðurinn: Linda Eshun
2. sæti Rilany
3. sæti Vivi
Markahæstar: Rilany Aguiar Da Silva og Carolina Mendes
Mikilvægasti leikmaðurinn: Sara Hrund Helgadóttir
Efnilegasti leikmaðurinn: Ísabel Jasmin Almarsdóttir

Sara Hrund fékk einnig blómvönd frá kvennaráði fyrir hennar framlag fyrir félagið en takkaskórnir hennar eru komnir á hilluna sökum höfuðmeiðsla.