sudurnes.net
Ákveðnir Keflvíkingar lögðu ÍR-inga í Dominos-deildinni - Local Sudurnes
Keflvíkingar hafa heldur betur rétt úr kútnum í Dominos-deildinni í körfuknattleik, liðið er komið í 6-8. sæti deildarinnar eftir að hafa verið í því næst neðsta. Liðið vann sannfærandi sigur á ÍR-ingum í TM-höllinni í kvöld, 98-79. Keflvíkingar voru betri á flestum sviðum körfuboltans í kvöld og allir leikmenn stóðu fyrir sínu, varnarleikur liðsins gekk einstaklega vel í kvöld og var liðið með mikinn fjölda stolinna bolta auk þess sem fráköstin voru þeirra. Keflvíkingar komu mjög ákveðnir til leiks og sjálfstraustið í botni, enda varnarleikurinn sterkur og hitnin góð. Liðið náði strax góðri forystu sem ÍR-ingar náðu ekki að ógna. Amin Khalil Stevens var stigahæstur Keflvíkinga með 29 stig og Hörður Axel Vilhjálmsson kom næstur með 18. Meira frá SuðurnesjumLéttur sigur KR-inga í toppslagnumKeflavík tapaði í Þorlákshöfn – Grindvíkingar efstir af SuðurnesjaliðunumNjarðvíkingar í góðri stöðu eftir sigur í GarðabæNaumt tap hjá Keflavík gegn Þór Þ.Grindvíkingar enn með í baráttunni um sæti í úrslitakeppninniKeflvíkingar lögðu Njarðvíkinga í LjónagryfjunniKeflavík lagði KR í stórskemmtilegum leikGrindavík tapaði gegn Snæfelli eftir tvíframlengdan leikÞróttur í góðri stöðu eftir 4-0 sigur gegn Hvíta RiddaranumNjarðvík hélt toppsætinu – Víðir í sjöunda eftir tap á Grenivík