Akstursíþróttafélag Suðurnesja kynnir rallycross
Miðvikudaginn 27. janúar næstkomandi mun Akstursíþróttafélag Suðurnesja standa fyrir kynningu á rallycrossi að Smiðjuvöllum 6 í Reykjanesbæ.
Samkvæmt tilkynningu frá félaginu mun verða farið yfir allt sem áhugasamir þurfa mögulega að vita til að byrja í þessu ört vaxandi sporti. Einnig verða bílar og búnaður til sýnis og sölu á svæðinu.
Nánari upplýsingar má finna hér.