sudurnes.net
Að duga eða drepast fyrir Keflvíkinga í kvöld - Local Sudurnes
Keflvíkingar verða að leggja allt undir þegar liðið mætir Vikingum í Víkinni í kvöld. Liðið er á botni Pepsí-deildarinnar með aðeins 5 stig þegar mótið er hálfnað. Þessi leikur er líka sérstaklega mikilvægur í ljósi þess að næstu leikir eru gegn sterkum liðum FH og Breiðabliks. Það er ljóst að Víkingar verða erfiðir heim að sækja enda eru þeir á svipuðum slóðum í deildinni, í þriðja neðsta sæti með níu stig. Liðin mættust í fyrstu umferð deildarinnar fyrr í sumar á Nettó-vellinum. Víkingar unnu þann leik 3-1 þar sem Hörður Sveinsson skoraði fyrir Keflavík en Davíð Örn Atlason, Igor Taskovic og Ívar Örn Jónsson gerðu mörk Víkings. Leikurinn í kvöld fer sem fyrr segir fram á heimavelli Vikinga, Vikinni og hefst klukkan 19.15 – Leiknum verður lýst beint á Hljóðbylgunni fm 101,2 og hefst útsendingin kl. 18. Meira frá SuðurnesjumMikilvægir sigrar hjá Suðurnesjaliðunum í Inkasso-deildinniÍRB sigra AMÍ 5. árið í röð – 53 verðlaunahafar af SuðurnesjumFótboltinn fer á fullt á ný – Ólík staða SuðurnesjaliðannaReynsla í fallbaráttu kemur Njarðvíkingum vel – Spáð 10. sæti í 2. deildMikilvægur leikur hjá Keflavík í Laugardalnum í dag – Í beinni á HljóðbylgjunniNjarðvík hélt toppsætinu – Víðir í sjöunda eftir tap á GrenivíkUngt Keflavíkurlið komið í [...]