Nýjast á Local Suðurnes

50 marka maður til Njarðvíkur

Theodór Guðni Halldórsson er gengin til liðs við Njarðvík á ný en hann skipti yfir til Reynis Sandgerði síðastliðinn vetur og lék með þeim í sumar.

Theodór hefur áður leikið með Njarðvík, en hann skipti yfir í Njarðvík frá Keflavík sumarið 2013 og á að baki alls 101 mótsleik og skorað í þeim 49 mörk.