Nýjast á Local Suðurnes

Yfir 50 viðburðir á dagskrá hjá menningarstofnunum Reykjanesbæjar

Menningarstofnanir í Reykjanesbæ hafa nú tekið höndum saman um að færa menninguna heim til fólks á meðan það hefur ekki kost á að stunda hana með öðrum hætti. Yfir 50 viðburðir af ýmsum toga eru í undirbúningi hjá þeim og eru sumir þeirra þegar farnir að líta dagsins ljós og halda áfram að gera það jafnt og þétt á meðan á samkomubanni stendur.

Vikulega birtist auglýsing þar sem megin dagskrá allra stofnana verður að finna á einum stað svo fólk geti betur áttað sig á hvað er í boði, hvar og hvenær en óhætt er að segja að þar kenni ýmissa grasa. Auglýsinguna verður að finna á facebooksíðum stofnananna, auk facebooksíðu Reykjanesbæjar og í viðburðadagatali á vefsíðu Reykjanesbæjar, reykjanesbaer.is.

Þeir sem að verkefninu koma eru Bókasafn Reykjanesbæjar, Byggðasafn Reykjanesbæjar, Listasafn Reykjanesbæjar, Hljómahöll og Rokksafn Íslands og Skessan í hellinum.

Daglegt streymi frá Bókasafninu kl. 15 auk fjölmargra viðburða

Meðal viðburða má nefna að Bókasafnið stendur fyrir hugleiðsluhádegi, notalegri sögustund fyrir börnin með Höllu Karen, krakkajóga auk þess að streyma ýmsu úr starfsemi safnsins, svo sem pokasaumi og kynningu á erlendu efni safnsins. Að sögn Stefaníu Gunnarsdóttur forstöðumanns safnsins er mikil eftirvænting í herbúðum starfsfólks fyrir verkefninu.

Ljósmyndir, leiðsagnir og sögulegur fróðleikur frá Byggðasafninu

Byggðasafn Reykjanesbæjar birtir daglega mynd dagsins úr myndasafni byggðasafnsins með tilheyrandi fróðleik, m.a. verða birtir sögumolar frá Árna Daníel Júlíussyni sagnfræðingi sem nú starfar við ritun á sögu Keflavíkur 1949-1994. Myndirnar eru eins og inngangur að sérstökum ljósmyndavef safnsins sem til stendur að setja í loftið á næstu vikum. Á vefnum mun fólk geta skoðað myndir, leitað eftir leitarorðum, pantað myndir og ekki síst verður auðvelt fyrir fólk að senda inn ábendingar og upplýsingar um hverja mynd. Þetta er langþráður vefur og mun án efa verða mörgum gleðiefni um ókomna tíð. Þá er ætlunin að vikulega verði boðið upp á stafræna leiðsögn á netinu um sýningar og geymslur safnsins og verður fyrsta leiðsögnin um sýninguna Varnarlið í verstöð í fylgd Helga Biering þjóðfræðings.

Nýjar heimildamyndir um yfirstandandi sýningar og fróðleikur um myndlist frá Listasafninu

Listasafn Reykjanesbæjar mun daglega deila fróðlegu efni um myndlist til áhugasamra. Því til viðbótar hefur Helga Þórsdóttir, nýr safnstjóri safnsins, unnið að gerð stuttra heimildarmynda með viðtölum við listamenn og sýningarstjóra þeirra sýninga sem nú eru í gangi í safninu, „Sögur úr Safnasafni“ og „Lífangar.“

Tónleikum Ásgeirs Trausta, Moses Hightower, GDRN og Hjálma streymt úr Hljómahöll auk viðburða í Rokksafni

Í Hljómahöll og Rokksafni Íslands eru ýmsir tónleikar og viðburðir í undirbúningi. Í þessari viku verður stórviðburður þegar tónleikum með Ásgeiri Trausta verður streymt úr Stapa á fimmtudag kl. 20 en eins og flestir vita hefur Ásgeir Trausti verið á tónleikaferðum erlendis um langt skeið. Í Rokksafninu verður einnig skemmtilegur viðburður á föstudag þegar Dr. Gunni  mætir á svæðið og verður með Popppunkt í safninu.

Skessan bregður á leik og vill fá myndir af börnunum

Að lokum má geta þess að Skessan í hellinum fer ekki varhluta af samkomubanni og hún vill leggja sitt af mörkum til að stytta smáfólkinu stundirnar með því að deila daglega inn á Facebooksíðuna sína hugmyndum að skemmtilegri afþreyingu fyrir börn og fjölskyldur og hefði hún einstaklega gaman af að fá sendar til sín myndir af krökkum sem eru að leysa Skessuverkefnin.

Það er því ljóst að af nægu verður að taka í menningunni á næstunni og er fólk hvatt til að líka við síður allra þessara stofnana, kynna sér vikulegar auglýsingar sem munu birtast og njóta þess sem í boði er.