sudurnes.net
Vinsælustu rapparar landsins skemmta í Reykjanesbæ - Local Sudurnes
Aðdáendur rapptónlistar geta hugsað sér gott til glóðarinnar um helgina, en á laugardagskvöldið mun Keflvíski rapparinn KILO troða upp á skemmtistaðnum H30 ásamt einum vinsælasta rapphóp landsins, Shades Of Reykjavík. KILO, sem er fæddur og uppalinn í Keflavík, sló rækilega í gegn í sumar með laginu Magnifico, auk þess sem hann átti eftirminnilega framkomu á Secret Solstice hátíðinni. Shades Of Reykjavík þarf vart að kynna, en hópurinn hefur meðal annars slegið í gegn með laginu Enginn trekantur hér, sem unnið var í samvinnu við Indversku Suðurnesjaprinsessuna Leoncie, auk þess sem lögin Macualy Culcin og Lúpínublús hafa fengið að hljóma duglega á öldum ljósvakans. Þá mun Basic B, einn flottasti Hip Hop DJ landsins og annar helmingur BLKPRTY sjá um tónlistina fyrir KILO á þessari skemmtun, sem enginn rappaðdáandi ætti að láta framhjá sér fara. Einhverjir heppnir eiga möguleika á að vinna sér inn miða á þessa einstöku tónleika með því að fylgja leiðbeiningum sem eru settar fram hér. Meira frá SuðurnesjumHollur Suðurnesjaskyndibiti á Secret SolsticeIndverska Prinsessan er mætt aftur – Myndband!Keflvíski rapparinn Kilo fór á kostum á Secret Solstice hátíðinniSíldarkvöld Knattspyrnudeildar Njarðvíkur á föstudagskvöldDagskrá Sjóarans síkáta glæsileg að vanda – Síðan skein sól á risadansleikKilo og Shades Of Reykjavík trylltu lýðinn [...]