Nýjast á Local Suðurnes

Víkingur Kristjánsson leikstýrir næsta verki Leikfélags Keflavíkur

Víkingur Kristjánsson - Mynd: Vesturport

Leikfélag Keflavíkur hefur ráðið Víking Kristjánsson sem leikstjóra næsta verks sem frumsýnt verður í byrjun nóvember í Frumleikhúsinu.

Víkingur Kristjánsson útskrifaðist frá leiklistardeild LHÍ vorið 2001. Hann er einn af stofnendum Vesturports sem hefur sett upp fjölmörg verk á Íslandi og um allan heim. Víkingur hefur leikstýrt í atvinnuleikhúsi, hjá áhugaleikhópum og í framhaldsskólum. Síðustu verkefni eru Allir á svið! með Leikfélagi Flateyrar (2013) og Þið munið hann Jörund með Litla leikklúbbnum á Ísafirði (2014).

Hefur þú áhuga að taka þátt í uppsetningu þetta árið?
Leikfélagið óskar eftir einstaklingum sem geta leikið, dansað, saumað, málað, smíðað, spilað á hljóðfæri og margt fleira. Fyrsti fundur með leikstjóra og kynning á verki, verður miðvikudaginn 9.september í Frumleikhúsinu kl.19.00. Fyrir alla þá sem áhuga hafa á að taka þátt og starfa í leikhúsi. Eina skilyrðið er að vera orðinn 16 ára og hafa áhuga á leikhússtarfi, segir á Facebooksíðu leikfélagsins.