Nýjast á Local Suðurnes

Þrettándaskemmtun í Reykjanesbæ í dag

Þrettándaskemmtun fer fram í Reykjanesbæ í dag, skemmtuninni sem fara átti fram á miðvikudag var frestað vegna veðurs. Dagskráin verður óbreytt en hefst klukkustund fyrr.

Kl. 16 – 17 Luktarsmiðja í Myllubakkaskóla (gengið inn frá Suðurtúni)

Takið með ykkur glerkrukku að heiman og útbúið fallega lukt til að ganga með í blysförinni að hátíðarsvæði. Allt efni til skreytinga á staðnum og led ljós til að setja í luktina.
Verð kr. 300.

Kl. 17:00   Blysför að hátíðarsvæði

Lagt af stað frá Myllubakkaskóla í fylgd álfakóngs og drottningar, álfa, púka og barna með luktirnar sínar.
Tónlistardagskrá á sviði undir stjórn Grýlu og jólasveins.
Álfakór flytur þrettándasöngva
Grýla og jólasveinninn taka lagið með börnunum
Kynjaverur á sveimi

Þrettándabrenna á Bakkalág.
Heitt kakó og piparkökur til að ylja sér á.

Karlakór Keflavíkur, Kvennakór Suðurnesja, Leikfélag Keflavíkur, Skátafélagið Heiðabúar, Björgunarsveitin Suðurnes,Lúðrasveit og Trommusveit Tónlistarskólans taka þátt í dagskránni.

Flugeldasýning Björgunarsveitarinnar Suðurnes

Ath. Bílastæði eru við Ægisgötu og Ráðhús, Tjarnargötu 12.