Nýjast á Local Suðurnes

Sýningin Við sjónarrönd opnar í dag – Áhrif loftslagsbreytinga í listrænni nálgun

Listasafn Reykjanesbæjar opnar  í dag kl. 18.00 sýninguna Við sjónarrönd, sem er samvinnuverkefni þeirra Elvu Hreiðarsdóttur, Phyllis Ewen frá Bandaríkjunum og Soffíu Sæmundsdóttur má sjá verk þeirra þriggja og einnig sameiginlegt sköpunarverk þeirra.

Listakonurnar fjalla meðal annars um landslag og landmótun, umbreytingar, jarðhræringar og áhrif loftslagsbreytinga, í listrænni nálgun við viðfangsefni sem einnig hafa verið vísindamönnum hugleikin.  Reykjanesskaginn er eins og opin jarðfræðibók með ummerkjum eldsumbrota og jarðhræringa, land í mótun og á hreyfingu, umlukið opnu hafi sem teygir sig í vestur allt að ströndum Bandaríkjanna.

Samstarf listakvennanna hófst árið 2014 þegar Phyllis Ewen kom til Íslands vegna sýningar Boston Printmakers sem haldin var í sal íslenskrar Grafíkur. Í framhaldinu komu í ljós snertifletir sem þær hafa unnið með síðan og sýna afraksturinn á þessari sýningu. Phyllis hefur m.a. unnið verk úr ljósmyndum sem hún tók á Reykjanesi í heimsókn sinni fyrir tveimur árum.

Sýningin stendur til 15.janúar n.k. og er í sal Listasafns Reykjanesbæjar í Duus Safnhúsum og þar er opið alla daga frá kl. 12.00-17.00.