Nýjast á Local Suðurnes

Svavar Knútur með tónleika í Salthúsinu

Tónlistarmaðurinn Svavar Knútur gefur út sína fjórðu sóló plötu í byrjun október og ætlar að því tilefni að fara í litla tónleikaferð og heimsækja vel valda staði. Platan ber nafnið Brot og hefur titillag plötunnar trónað á efstu sætum vinsældarlista Rásar 2 síðustu vikur. Á plötunni er að finna tíu lög, bæði á íslensku og ensku, umfjöllunarefnið er gleði, sorgir og hin hversdagslegu ævintýri lífsins, heimspeki og önnur hjartans mál lituð með einstökum litum söngvaskáldsins.

Platan er gefin út af Dimmu kemur út á geisladisk og vínyl, en ennfremur verður hún gefin út sem lítill konfektkassi, þar sem niðurhalskóðar og bæklingur fylgja með. Það er líklega í fyrsta skipti sem plata er gefin út sem súkkulaði og segir Svavar Knútur það vera viðleitni til þess að bregðast við minnkandi geisladiskasölu á skapandi hátt. Það er einmitt dóttir Svavars Knúts hefur alla tíð teiknað og / eða málað plötuumslögin hans og mun eitt þeirra listaverka prýða þessa súkkulaðiútgáfu.

Svavar Knútur hefur löngu stimplað sig inn í hjörtu landsmanna, enda hefur hann skapað sér sess á meðal fremstu söngvara og lagahöfunda landsins með sinni einskæru einlægni og túlkun á bæði sígildum íslenskum sönglögum sem og sínum eigin.

Tónleikarnir verða í Salthúsinu í Grindavík og hefjast kl. 21.00, miðaverð kr. 2000.